Dagsetningar og fjárhæðir
- Gjalddagar eru tvisvar á ári
- Föst afborgun er á fyrri hluta árs
- Tekjutengd afborgun er á seinni hluta árs
- Þetta á við G-,R-,S- og V-lán. Svokölluð markaðskjaralán sem veitt voru vegna skólagjalda erlendis árin 1992-2005 lúta öðrum skilmálum og eru ekki sýnd hér.
Lána- flokkur | Veitt árin | Verð-tryggt | Vextir | Föst afborgun, gjalddagi
| Föst afborgun upphæð* | Tekjutengd afborgun, gjalddagi | Tekjutengd afborgun, upphæð **** |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| G | Frá 2005 | Já | 1% | 1. mars** | 105.574 | 1. sept. | 3,75% af tekjustofni mínus fasta afborgunin |
| R | 1992-2005 | Já | 1% | 1. mars** | 105.574 | 1. sept. | 4,75% af tekjustofni mínus fasta afborgunin. |
| S*** | 1982-1992 | Já | 0% | 1. mars | 62.516 | 1. sept. | 3,5%-3,75% af tekjustofni mínus fasta afborgunin |
| V | Til 1982 | Já | 0% | 1. júlí | Fer eftir lánstíma: Upphæðir verða birtar síðar á árinu | 1. nóv. | 1-1,7% af tekjustofni, fjölskyldustærð og tekjur maka hafa einnig áhrif |
* Tekur breytingu ár hvert skv. breytingu á vísitölu. Upphæðir G-, R- og S-lána gilda árið 2010, V-lána giltu árið 2009.
** Allra fyrsta afborgunin er með gjalddaga 30. júní hjá ákveðnum hópi.
*** Eru sameinuð T-lán.
**** Tekjustofn svarar til útsvarstekjustofns fyrir V-,S- og R-lán. Tekjustofn fyrir G-lán svarar til útsvarstekjustofns að viðbættum fjármagnstekjum. Fjárhæð teknanna samkvæmt skattauppslýsingum er margfölduð með hlutfallslegri breytingu á vísitölu frá 1. júlí á tekjuöflunarári til 1. júlí á endurgreiðsluári.
- Heimild er í lögum nr. 21/1992 að vextir á R- og G-lánum geti verið allt að 3%.





