Mitt svæði

Hér getur þú sótt um og séð stöðu þína.

 

 

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Hér getur þú sent fyrirspurnir og fengið svör við almennum spurningum.

Afborganir > Greiðsluerfiðleikar > Undanþága, frestun

Undanþága frá afborgun

Undanþága frá afborgunum (frestun) kemur til álita þegar

  • Lánshæft nám, atvinnuleysi, örorka, veikindi, þungun eða umönnun barna (fæðingarorlof) valda verulegum fjárhagsörðugleikum
  • Við mat á því hvort skilyrði séu til að veita undanþágu frá fastri afborgun er m.a. litið til breytinga á tekjum lánþega s.l. fjóra mánuði samanborið við tekjur ársins 2009.
  • Veitt undanþága lengir endurgreiðslutíma S- og V-lána sem nemur undanþágutímanum

Sótt um

  • Unnt er að sækja um undanþágu frá afborgun á Mínu svæði.
  • Umsókn þarf að berast sjóðum eigi síðar en 60 dögum eftir gjalddaga afborgunar.
  • LÍN óskar eftir að lánþegi sendi staðgreiðsluyfirlit skatta, það getur lánþegi sótt rafrænt: Farið er inn vefsvæðið rsk.is - þjónustusíða og valið RSK-staðgreiðsluyfirlit undir liðnum þjónusta í boði. Velja svo Fá yfirlit í PDF. Yfirlitið er unnt að vista og senda sem viðhengi í tölvupósti til LÍN á netfangið lin@lin.is.
  • Sé sótt um vegna atvinnuleysis er þeim sem eru skráðir hjá Vinnumálastofnun bent á að sækja rafræna staðfestingu og senda LÍN. Umsækjandi fer inn á vinnumalastofnun.is, skráir sig inn á Umsókn um atvinnu og atvinnuleysisbætur / Payslips og sækir síðasta greiðsluseðil frá Vinnumálastofnun. Hann er unnt að vista og senda sem viðhengi í tölvupósti til LÍN á netfangið lin@lin.is
  • Umsækjendur sem ekki eiga möguleika á að nýta sér "Mitt svæði"  geta óskað eftir að fá sent eyðublað vegna umsóknar um undanþágu eða sótt það í afgreiðslu LÍN í Borgartúni 21

Sjá nánar kafla 7.4 í úthlutunarreglum LÍN.