Mitt svæði

Hér getur þú sótt um og séð stöðu þína.

 

 

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Hér getur þú sent fyrirspurnir og fengið svör við almennum spurningum.

Afborganir > Greiðslur > Greiðsludreifing

Greiðsludreifing

Til að dreifa afborgunum geta greiðendur valið milli tveggja kosta:
a)  Greiðsludreifingu hjá LÍN
b)  Greiðsludreifingarþjónustu hjá banka

Greiðsludreifing LÍN

  • Afborgun dreifist jafnt á 4 eða 6 mánuði samkvæmt vali lántaka*
  • 4 eða 6 dreifigreiðslur*
  • Dreifigreiðslurnar eru greiddar gegnum íslenskan banka (í íslenskum heimabanka, í beingreiðslu eða hjá gjaldkera í íslenskum banka)
  • Hverja dreifigreiðslu þarf að greiða í heilu lagi
  • Afgreiðslugjald er 1,5% vegna 4 mánaða dreifingar en 2% vegna 6 mánaða dreifingar, leggst á fyrstu dreifigreiðsluna
  • Greiðsludreifing hefst frá og með næstu afborgun eftir umsókn, en sé sótt um innan tveggja mánaða frá gjalddaga afborgunar, er unnt að fá greiðsludreifinguna frá og með þeirri afborgun
  • Sjá nánar skilmála 4 mánaða dreifingar og skilmála 6 mánaða dreifingar 
  • Umsókn um greiðsludreifingu er á Mínu svæði, eldri afborganir þurfa að vera í skilum

*Afborgun undir kr. 30.000 er ekki dreift

 

Greiðsludreifingarþjónusta hjá banka

  • Er samkomulag milli greiðanda og viðskiptabanka hans
  • Er án milligöngu LÍN