Greiðsluleiðir
Greiðandi getur greitt afborganir námslána með því að
- Greiða greiðsluseðilinn eða ígildi hans (kröfunúmerið) hjá gjaldkera í íslenskum banka
- Greiða kröfuna í íslenskum heimabanka
- Láta íslenskan viðskiptabanka sinn skuldfæra LÍN kröfur (beingreiðsla)
- Sækja um til LÍN að afborganir verði skuldfærðar á kreditkort (Mastercard eða VISA)
- Greiða í afgreiðslu LÍN, Borgartúni 21
- Senda greiðsluna til LÍN gegnum erlendan banka
Sé afborgun komin til milliinnheimtu skal greiða hjá milliinnheimtuaðila eða greiða bankakröfuna.
Sé skuld komin í lögmannsinnheimtu skal greiðandi snúa sér til viðkomandi lögmannsstofu.
Heimilt er að greiða inn á lán hvenær sem er utan reglubundnu afborgananna. Slíkar sérgreiðslur eru greiddar inn á reikning LÍN, mikilvægt er að skýring fylgi.
Sjá nánar:





