Greiðslur til LÍN gegnum erlenda banka
- Greiðandi gefur hinum erlenda viðskiptabanka sínum upp upphæðina sem á að yfirfæra í erlendri mynt
- Greiðandi gefur upp viðeigandi greiðsluleið miðað við mynt lands, sbr. hér fyrir neðan
- Mikilvægt er að merkja greiðsluna með kennitölu og fullu nafni lántaka
Upphæð greiðslu sem send er
Upphæð greiðslu í erlendri mynt ræðst af
- Upphæð í íslenskum krónum sem viðkomandi greiðandi vill koma til skila
- Gengi íslensku krónunnar gagnvart viðkomandi erlendri mynt
- Kostnaði sem bankar leggja á þjónustuna
- Greiðendum er bent á að gera ráð fyrir ísl.kr. 500 í íslenskan bankakostnað og e.t.v. erlendum bankakostnaði
- Nýjustu gengisupplýsingar hverju sinni má finna á vef Seðlabanka Íslands. Með því að yfirfæra upphæð í erlendri mynt sem samsvarar (skuld í ísl.kr./gengi + kostnaður banka) er greiðandi nálægt því að senda rétta upphæð
- LÍN fær síðan greiðsluna í íslenskum krónum á gengi móttökudags
- Hugsanlegur munur á gengi sendingardags og móttökudags er ekki á ábyrgð LÍN
- Fái LÍN lægri upphæð í íslenskum krónum en sem nemur afborgun og mögulega áföllnum gjöldum teljast ekki hafa verið gerð full skil á afborguninni
- Fái LÍN hins vegar hærri upphæð en sem nemur afborgun og mögulega áföllnum gjöldum er sú fjárhæð sem umfram er færð inn sem sérgreiðsla inn á lánið og kemur til lækkunar þess
Greiðsluleiðir
Beneficiary name: LIN (Lanasjodur islenskra namsmanna, Borgartuni 21, 105 Reykjavik, Iceland)
Beneficiary account: IS45 0111 26 000205 7101690989
Beneficiaries bank: NBI HF (SWIFT: NBIIISRE )
Síðan skal velja viðeigandi línu eftir því í hvaða mynt greiðsla er innt af hendi:
NBI's CAD correspondent: ROYCCAT2
NBI's CHF correspondent: CITIGB2L
NBI's DKK correspondent: JYBADKKK
NBI's EUR correspondent: CITIGB2L
NBI's GBP correspondent: CITIGB2L
NBI's JPY correspondent: CITIGB2L
NBI's NOK correspondent: DNBANOKK
NBI's SEK correspondent: ESSESESS
NBI's USD correspondent: CITIUS33





