Mitt svæði

Hér getur þú sótt um og séð stöðu þína.

 

 

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Hér getur þú sent fyrirspurnir og fengið svör við almennum spurningum.

Afborganir > Innheimta, vanskil

Innheimta og vanskil

Ef afborgun er ekki greidd fyrir eða á eindaga, leggst viðbótarkostnaður á skuldina. Dráttarvextir eru reiknaðir frá gjalddaga og gjald er lagt á fyrir innheimtuviðvörun samkvæmt heimild í reglugerð. Komi til milliinnheimtu og lögmannsinnheimtu hækkar enn kostnaður. Sjóðurinn hvetur því lánþega til að standa í skilum.

 

Eindagi reglubundinna afborgana er að jafnaði þriðja virka dag eftir gjalddaga. Séu ekki gerð skil er ítrekun með viðvörun um milliinnheimtu send lánþega um 25 dögum eftir gjalddaga og til greiðanda og ábyrgðarmanna um 45 dögum eftir gjalddaga. Séu enn ekki gerð skil fer krafan til milliinnheimtu 60 dögum eftir eindaga kröfu og leggur milliinnheimtufyrirtæki á gjald samkvæmt heimildum í reglugerð. Sé krafa í milliinnheimtu skulu greiðendur snúa sér til milliinnheimtufyrirtækisins vegna greiðslu. Reynist innheimta enn árangurslaus fer krafan áfram til lögmannsinnheimtu.

 

Sé hins vegar afborgun í greiðsludreifingu hjá LÍN var innheimta vegna vanskila afborgana s.l. ár með eftirfarandi hætti: Höfðu skil ekki verið gerð um 10 dögum eftir eindaga síðustu dreifikröfunnar var ítrekun send lánþega og ábyrgðarmanni. Væru enn ekki gerð skil var lánþega og ábyrðgarmanni send ítrekun með viðvörun um lögmannsinnheimtu. Reynist skuldin ógreidd að gefnum fresti liðnum er skuldin til lögmannsinnheimtu. Unnið er að breytingum á þessu ferli vegna afborgana ársins 2010 og verða upplýsingar um breytt ferli settar hér innan skamms.

 

Séu skuld í lögmannsinnheimtu skulu greiðendur snúa sér beint án milligöngu LÍN til viðkomandi lögmannsstofu vegna greiðslu. Ef krafa á hendur lánþega er óuppgerð í innheimtu hjá lögmönnum þegar ný afborgun kemur á gjalddaga fer nýja krafan beint til lögmanna og gefst greiðendum kostur á að gera upp vanskil sín gagnvart LÍN í heild hjá lögmönnum án milligöngu LÍN.