Fréttir og tilkynningar
LÍN hættir að senda út greiðsluseðla
LÍN hefur ákveðið að hætta að senda út greiðsluseðla. Jafnframt verður hætt að senda tilkynningu um skuldfærslu til þeirra greiðenda sem beingreiða afborganir námslána. Þessi breyting tekur gildi frá og með afborgun með gjalddaga 1. mars 2010. Allar kröfur birtast í heimabönkum (íslenskum heimabönkum lánþega). Nánari upplýsingar um hverja afborgun geta lántakendur séð á ,,Mínu svæði” LÍN. LÍN vill með þessu móti draga úr pappírsnotkun og kostnaði sem henni fylgir, leggja lóð á vogarskálar umhverfisverndar og auka um leið rafræn viðskipti. Greiðendur sem vilja samt sem áður fá senda greiðsluseðla, geta óskað eftir því með því að merkja við hnappinn ,,Fá senda greiðsluseðla" inni á ,,Mínu svæði".
Útborgun haustlána 2009
Almenn útborgun lána til námsmanna á Íslandi vegna haustmisseris 2009 hefst 7. janúar nk. Athugið að LÍN fær námsárangur umsækjenda beint frá skólum á Íslandi. Námsmenn erlendis verða eftir sem áður að senda námsárangur sjálfir til LÍN. Nemendur í skiptinámi frá Íslandi eiga þó alltaf að senda námsárangur á skólann sinn hér heima. Allir námsmenn eru hvattir til að fylgjast með stöðunni á sínu láni á "Mitt svæði" hjá LÍN. Þar geta námsmenn t.d. séð eftirfarandi:
- Á eftir að skila einhverjum gögnum sem stoppa afgreiðslu láns?
- Hefur námsárangurinn verið skráður hjá LÍN?
- Hefur útborgun lánsins átt sér stað?
Lokun skuldabréfs og upphaf á endurgreiðslum
Nú er verið að loka skuldabréfinu hjá þeim lánþegum sem fengu síðast lán á námsárinu 2007-2008 og eiga þar með að hefja endurgreiðslur á árinu 2010. Búið er að senda þeim námsmönnum sem þetta á við tilkynningu og eru þeir hvattir til að kynna sér hana.
Einhverjir lánþegar gætu átt rétt á að lokunardegi skuldabréfs, og þar með upphafi endurgreiðslna, verði frestað. Það geta verið þeir sem:
- Voru í lánshæfu námi á námsárinu 2008-2009 án þess að sækja um lán.
- Eru að hefja lánshæft nám aftur á haustönn 2009 og hafa ekki gert hlé á námi í meira en eitt ár.
Með lánshæfum námsárangri er átt við að námsmaður hafi lokið 20 ECTS-einingum eða ígildi þeirra á námsárinu. Almennt gildir að sækja verður um frestun á lokun skuldabréfs á því námsári sem lánshæft nám er stundað án námsaðstoðar frá LÍN. Frestur til að sækja um frestun lánsloka er til 23. nóvember 2009.
Nýjar reglur um grunnframfærslu LÍN
Nú er hægt að sækja um endurútreikning á lánsáætlun á "Mínu svæði" skv. nýjum úthlutunarreglum. Útreikningum hjá námsmönnum sem sóttu um fyrir 10. september verður ekki breytt nema þeir sæki um það. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna á "Mínu svæði".
Nýju reglurnar fela í sér eftirfarandi breytingar:
- 20% hækkun á grunnframfærslu, á það við um framfærslu bæði á Íslandi og erlendis. Lán vegna barna og maka, ef námsmaður á rétt á slíku, hækka í sama hlutfalli.
- Tekið er upp frítekjumark, 750.000 krónur og ef námsmaður er að koma af vinnumarkaði er hægt að fimmfalda þetta frítekjumark. Lánin skerðast síðan um 35% vegna tekna umfram frítekjumark.
- Framfærsla einstaklinga í foreldrahúsum eða leigulausu húsnæði stendur í stað og verður 50% af grunnframfærslu.
Vakin er athygli á því að námslán geta lækkað í vissum tilfellum, sérstaklega hjá tekjuháum einstaklingum. Allir þeir sem sóttu um lán fyrir breytingu eru hvattir til að nota reiknivél sjóðsins til að sjá hvaða áhrif ofangreindar breytingar hafa á útreiknaða framfærslu. Mikilvægt er að hafa í huga að ekki er hægt að afturkalla breytingar þegar óskað hefur verið eftir því af hálfu námsmanns.
Sjá einnig fréttatilkynningu ríkisstjórnarinnar.
Greiðslur til LÍN í gegnum erlenda banka
Greiðendum sem greiða gegnum erlenda banka er hér bent á að greiðsluupplýsingar voru uppfærðar í september 2009.
Úthlutunarreglur fyrir námsárið 2009-2010
Úthlutunarreglum fyrir námsárið 2009-2010 hefur verið breytt í samræmi við breytingu á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna nr. 21/1992, þar sem fallið er frá því að námsmenn þurfi að útvega ábyrgðarmenn svo framarlega sem þeir teljist lánshæfir skv. gr. 5.1.8 í úthlutunarreglunum.
"Mitt svæði" og "pop-up blocker"
Nokkuð hefur borið á því að svokallaður "pop-up blocker" valdi notendum vandræðum við að tengjast inn á "Mitt svæði" LÍN gegnum netbanka viðskiptabanka sinna. Hér má nálgast ábendingar um stillingar vegna "pop-up blocker".
Útborgun námslána til lánþega í námi erlendis og breytingar á gengi
Námslán eru reiknuð út í mynt viðkomandi námslands, sjá framfærslutöflu. Þegar lán eða hlutar þess koma til útborgunar er upphæðin umreiknuð í íslenskar krónur miðað við daggengi, þ.e. viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands, sölugengi. Upphæðin er síðan greidd inn á reikning lántakanda í íslenskum viðskiptabanka eða sparisjóði. Þetta þýðir, að lækki gengi íslensku krónunnar gagnvart mynt námslands, hækkar sú upphæð sem LÍN greiðir út í íslenskum krónum.
ECTS-einingar
ECTS stendur fyrir "European Credit Transfer and Accumulation System" og er notað sem staðall til þess að bera saman og meta námsárangur og frammistöðu nemenda. Námsmenn fá ákveðinn fjölda ECTS-eininga fyrir staðin fög og námsskeið. Eitt námsár jafngildir 60 ECTS-einingum, sem samsvara 1500-1800 klukkutímum í námi. Sjá frekari upplýsingar um einingakerfið hér .
Allir háskólar á Íslandi hafa tekið upp ECTS-einingakerfið. LÍN mun þannig meta allt lánshæft nám í ECTS-einingum þegar námslán eru reiknuð, jafnvel þó aðrir skólar á Íslandi og skólar utan EES svæðisins noti ekki ECTS-einingar. Fullt nám í skólum þar sem önnur einingakerfi eru notuð telst þannig ígildi 60 ECTS-eininga og t.d. 75% nám samkvæmt skipulagi skóla ígildi 45 ECTS-eininga. Sjá frekari upplýsingar um yfirfærsluna hér.






