Námslán > Útlán > Hvenær útborgað

 

Útborgun námslána

                                                                                                                                             

Útborgun framfærslu-, bóka- og ferðalána hefst að loknum 20-30 ECTS-einingum í byrjun janúar og að loknum 40 eða fleiri ECTS-einingum í byrjun apríl.  Eftir það fæst lán útborgað þegar staðfestar upplýsingar um loknar einingar berast sjóðnum.

                                                                                                                                              

Til að eiga rétt á námsláni þarf námsmaður að ljúka samanlagt 20 ECTS-einingum eða ígildi þeirra á skólaárinu.  Berist upplýsingar um færri einingar bíður afgreiðsla láns þar til 20 einingum hefur verið lokið.  Lán er annars afgreitt í samræmi við einingaskil með þeirri undantekningu að ekki er lánað út á 31-39 einingar fyrr en námsmaður hefur lokið 40 einingum.  Aldrei er lánað út á fleiri en 80 einingar á námsári.

 

Sérstakar reglur gilda um útborgun skólagjaldalána, sbr. hér neðst á síðunni.

 

 

Dæmi:

Námsmaður á rétt á námsláni út á 60 einingar og reiknast 10.000 í framfærslulán, 1.000 í ferðalán og 100 í bókalán; samtals 11.100 í námslán.  Hann gerir ráð fyrir að taka próf fjórum sinnum á námsárinu og ljúka 15 einingum í hvert skipti, nánar tiltekið í nóvember, janúar, apríl og júní.  Útborgunaráætlun hans gæti þá litið þannig út:

 

 
  Lánsáætlun   nóvember janúar apríl júní 
 
 Loknar einingar 60  
15 15 15 15 
           
 Útborgun framfærsluláns 10.000  
0 5.000 2.500 2.500 
0 550 550
 Útborgun ferða- og bókaláns 1.100    
           
 Samtals útborgað 11.100  
0 5.550 3.050 2.500 
 

 

 

Reglur um útborgun skólagjaldaláns:

Viðbótarlán vegna skólagjalda eru veitt í eitt misseri að loknum 20 ECTS-einingum, í tvö misseri að loknum 40 ECTS-einingum og á sumarmisseri að loknum 75 ECTS-einingum.  Ef skólaári er skipt í þrjú tímabil eru veitt skólagjaldalán fyrir einn fjórðung að loknum 20 ECTS-einingum, fyrir tvo fjórðunga að loknum 26 ECTS-einingum, fyrir þrjá fjórðunga að loknum 40 ECTS-einingum og fyrir nám á sumarönn að loknum 75 ECTS-einingum.

 

Heimilt er að greiða út lán vegna skólagjalda fyrir eitt misseri við upphaf námstímabils til annarra námsmanna en fyrsta árs nema, fyrir annað misseri að loknum 20 ECTS-einingum og fyrir þriðja misseri að loknum 60 ECTS-einingum. Ef skólaári er skipt í þrjú tímabil er fyrirframgreiðsla heimil með sama hætti vegna annars fjórðungs að loknum 20 ECTS-einingum, vegna þriðja fjórðungs að loknum 26 ECTS-einingum og vegna sumarannar að loknum 60 ECTS-einingum.