Skiptinemar eiga að sækja um námslán vegna náms í þeim skóla sem þeir eru skráðir í á Íslandi og munu væntanlega útskrifast frá. Ekki sækja um lán vegna náms erlendis.
Skiptinemar geta óskað eftir að fá sömu framfærslu og gildir í því landi eða skóla sem þeir heimsækja. Framfærslan verður greidd út í íslenskum krónum og miðast við fast gengi 1. júní 2009. Einfaldast er að gera það með sérstakri rafrænni skiptinemaumsókn inn á „Mitt svæði“, en einnig er hægt að senda slíka beiðni með tölvupósti á lin@lin.is. Til að slík beiðni sé afgreidd, verður áður að hafa borist staðfesting til sjóðsins á skiptináminu. LÍN fær á hverju ári senda lista yfir væntanlega Erasmus- og Nordplus-skiptinema, en skólarnir á Íslandi verða sjálfir að senda staðfestingar fyrir aðra skiptinema (upplýsingar verða að innihalda nafn og kennitölu, námsstað, tímabil og hvort styrkur sé veittur eða ekki).
Styrkur sem veittur er vegna skiptinámsins kemur ekki til lækkunar á námslánum, enda fá þeir nemendur ekki ferðalán frá sjóðnum. Aðrir skiptinemar sem ekki fá styrk, geta sótt um ferðalán hjá sjóðnum (sjá upphæðir ferðalána í gr. 4.12.2 í úthlutunarreglum sjóðsins).
Sömu námskröfur eru gerðar til skiptinema eins og gerðar eru til þeirra í náminu á Íslandi. Fullt nám á skólaári telst vera 60 ECTS-einingar, en ljúka þarf a.m.k. 20 ECTS-einingum á skólaárinu til að eiga rétt á námsláni. Námslán eru afgreidd í hlutfalli við einingaskil.
Ekki senda námsárangur erlendis frá beint til LÍN, heldur skal senda hann til skólans á Íslandi sem metur hann inn í námið hér og staðfestir svo við LÍN.
Skiptinemar eiga rétt á því að láta taka tillit til námskeiða umfram þann heildareiningafjölda sem þarf til lokaprófs, að hámarki þó 20 ECTS-einingar.
Útborgun námslána vegna námsársins 2009-10 skal lokið eigi síðar en 1. desember 2010, eftir þann tíma er of seint að leggja fram gögn til að fá lán afgreitt. Skiptinemar eru því hvattir til að fylgjast vel með, dragist það á langinn að námsárangurinn sé sendur að utan.
Ef skiptinemar fara til Norðurlandanna og verða að færa lögheimili sitt þangað, þá er æskilegt að þeir tilnefni einhvern tengilið hér á landi sem getur tekið við bréfasendingum frá sjóðnum ef til þess kemur.