Mitt svæði

Hér getur þú sótt um og séð stöðu þína.

 

 

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Hér getur þú sent fyrirspurnir og fengið svör við almennum spurningum.

Jöfnunarstyrkur > Um jöfnunarstyrk

Hvað er jöfnunarstyrkur?

Jöfnunarstyrkur er styrkur fyrir nemendur sem stunda nám á framhaldsskólastigi fjarri lögheimili og fjölskyldu. Lögheimili má ekki vera í nágrenni við skóla en nánari skýringar á því eru gefnar í fylgiskjali. Námið verður að vera að lágmarki eins árs skipulagt nám við skóla sem falla undir lög um framhaldsskóla/menntaskóla. Nemandi getur ekki fengið hvoru tveggja, jöfnunarstyrk og námslán, á sömu önn. Hámarkslengd styrks er til fimm ára eða í tíu annir.

Hvernig er hægt að sækja um styrkinn?

Nemendur geta sótt um styrkinn í gegnum heimabankann sinn, Innu, vefkerfi framhaldsskólanna og þjónustuvef RSK sjá "Mitt svæði". Umsóknarfrestur er til 15. október á haustönn og 15. febrúar á vorönn. Berist umsókn hins vegar eftir að frestur rennur út, þ.e.a.s. eftir 15. október og 15. febrúar þá skerðist styrkurinn frá og með 1. nóvember og 1. mars um 15%. Berist umsóknin meira en mánuði eftir að umsóknarfrestur rann út, þá afgreiðist hún með umsóknum næstu annar.

Akstursstyrkur eða dvalarstyrkur 

Jöfnunarstyrkur skiptist annars vegar í a) akstursstyrk og b) dvalarstyrk. Styrkurinn er ekki greiddur út fyrr en niðurstöður prófa liggja fyrir.
a) Akstursstyrkur er ætlaður þeim nemendum sem þurfa að keyra daglega í skólann frá lögheimili sínu.
b) Dvalarstyrkur er fyrir þá nemendur sem þurfa að flytja a.m.k. 30 km frá lögheimili sínu og fjölskyldu til að geta stundað nám. 

Tengsl við lögheimili

Eitt af grunnskilyrðum fyrir jöfnunarstyrk er að nemandi geti sýnt fram á tengsl við lögheimili sitt. Þessi tengsl geta t.d. verið fjölskylda, þinglýstur leigusamningur eða fasteignavottorð. Í reglugerð um námsstyrki er fjölskylda skilgreind sem foreldrar, forráðamaður, ömmur, afar, maki skv. skráðri sambúð eða börn.

Námsframvinda

Annað grunnskilyrða fyrir veitingu styrksins er námsástundun. Nemandi verður að taka próf sem jafngildir a.m.k. tólf einingum eða að skólinn staðfesti námsárangur hans með ástundunarvottorði. Heimilt er að miða við sex einingar sé um lokaönn að ræða og nemandi hafi lokið tólf einingum á undangenginni önn. Takist nemanda ekki að ljúka námi t.d. vegna veikinda verður fullgilt læknisvottorð að liggja fyrir. Styrkurinn er síðan greiddur út tvisvar á ári, í janúar og júní, þegar niðurstöður prófa liggja fyrir!