Ábyrgðarmenn
Í hverju felst ábyrgðin?
Með því að gangast í ábyrgð fyrir námsláni er ábyrgðarmaður skuldbundinn að greiða af námsláninu um leið og um vanskil er að ræða. Sjóðurinn tilkynnir ábyrgðarmanni ef um vanskil er að ræða.
Ekki er hægt að fella niður ábyrgð nema að ný ábyrgð hafi verið sett í staðinn með samþykki sjóðsins.
Lán veitt frá og með námsárinu 2009-2010
Auk sjálfskuldarábyrgðar námsmanns þarf umframábyrgð sé námsmaður á vanskilaskrá. Umframábyrgðin getur verið sjálfskuldarábyrgð ábyrgðarmanns eða önnur ábyrgð.
Áður en námsmaður og ábyrgðarmaður undirrita skuldabréfið framkvæmir sjóðurinn greiðslumat hjá námsmanni sem ábyrgðarmaður fær sent til staðfestingar.
Hámarksábyrgð hvers ábyrgðarmanns er 7 milljónir króna.
Lán veitt til og með námsárinu 2008-2009
Öll námslán veitt fyrir námsárið 2008-2009 eða fyrr voru með ábyrgð námsmanns og ábyrgðarmanns/manna.
Eldri ábyrgðir eru enn í fullu gildi
- Sjálfskuldarábyrgðir sem skrifað var undir fyrir gildistöku laganna um ábyrgðarmenn nr. 32/2009, verða ekki ógildar þótt ábyrgðarmanni hafi ekki verið sýnt greiðslumat. Ákvæði laganna sem setja skyldu á lánveitandann um slíkt eru ekki afturvirk.
- LÍN var ekki aðili að samkomulagi um notkun ábyrgða á skuldum einstaklinga frá 2001.
- Þegar almenna krafan um ábyrgðir á námslánum var afnumin, var sérstaklega tekið fram við þá lagasetningu að hún nái ekki til lánsloforða sem veitt voru fyrir gildistöku laganna, sbr. bráðabirgðaákvæði laga nr. 78/2009.