Main Content

Skilyrði

Ábyrgðarmenn verða að vera orðnir 18 ára og fjárráða

Ábyrgðarmenn skulu almennt vera íslenskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi. 

Lánasjóðurinn samþykkir ekki ábyrgðarmenn sem eru á vanskilaskrá, í vanskilum við sjóðinn eða til gjaldþrotameðferðar.

Ef staða ábyrgðarmanns breytist á milli afgreiðslu námslána þarf námsmaður að útvega nýjan ábyrgðarmann.  Nýi ábyrgðarmaður ábyrgist þá viðbótarlánið.

Ekki er hægt að fella niður ábyrgð nema að ný ábyrgð hafi verið sett í staðinn með samþykki sjóðsins.