Lánskjör og lánaflokkar
Síðan 2005 eru öll lán svokölluð G-lán. Hér fyrir neðan er nánari lýsing á lánaflokkum. Greiðendur geta séð stöðu sinna lána og jafnframt lánaflokk á Mínu svæði.
G-lán
- Veitt frá árinu 2005.
- Verðtryggð og 1% vextir.***
- Endurgreiðslur hefjast 2 árum eftir námslok.*
- Endurgreiðslur standa yfir þar til skuld er uppgreidd eða lánþegi er fallinn frá.
R-lán**
- Veitt árin 1992 til 2005.
- Verðtryggð og 1% vextir.***
- Endurgreiðslur hefjast 2 árum eftir námsslok.*
- Endurgreiðslur standa yfir þar til skuld er uppgreidd eða lánþegi er fallinn frá.
S-lán
- Veitt árin 1982 til 1992.
- Verðtryggð.
- Endurgreiðslur hófust 3 árum eftir námslok.*
- Endurgreiðslur standa yfir þar til skuld er uppgreidd eða lánþegi er fallinn frá, þó ekki lengur en 40 ár.
V-lán
- Veitt árin 1976 til 1982.
- Verðtryggð.
- Endurgreiðslur hófust 3 árum eftir námslok.*
- Endurgreiðslur standa yfir þar til skuld er uppgreidd eða lánþegi er fallinn frá, þó ekki lengur en 20 ár.
* Námslok teljast þegar námsmaður hættir að þiggja lán hjá LÍN, nema hann sýni fram á áframhaldandi lánshæft nám á næsta skólaári þar á eftir.
** Á árinu 2005 gafst lánþegum með R-lán kostur á að skuldbreyta láni sínu yfir í G-lán.
*** Heimild er í lögum nr.21/1992 að vextir á R- og G-lánum séu allt að 3%.