Main Content

Tekjuupplýsingar

Almennt

  • Sjóðurinn aflar  upplýsinga um tekjur lánþega hjá Ríkisskattstjóra.
  • Ef Ríkisskattstjóri hefur um mitt ár áætlað tekjur á lánþega ber sjóðnum að nota áætlunina við útreikning tekjutengdrar afborgunar.
  • Lánþega ber jafnframt að standa skil á þessari greiðslu, þó að hann telji hana ekki taka mið af réttum tekjum.
  • Greiðandi getur síðan sótt um endurútreikning í allt að 60 daga eftir gjalddaga og fengið afborguninni breytt þegar nauðsynleg gögn hafa borist sjóðnum.

Tekjur erlendis

  • Ef lánþegi er búsettur erlendis og ekki skattskyldur á Íslandi af öllum tekjum sínum og eignum getur hann skilað inn staðfestingu á tekjum frá viðkomandi skattyfirvöldum.
  • Hér má sjá hvaða staðfestingar og upplýsingar þarf að senda sjóðnum frá nokkrum löndum, varðandi tekjur greiðenda.
  • Erlendar tekjur eru umreiknaðar í íslenskar krónur miðað við meðalgengi Seðlabanka Íslands undirliggjandi tekjuárs fyrir viðkomandi mynt þegar gjalddagi er myndaður.
  • Hafi slík staðfesting ekki borist þegar tekjutengd afborgun er ákvörðuð í byrjun ágúst ár hvert, eru tekjur áætlaðar á lánþega og viðbótargreiðslan reiknuð samkvæmt henni. Lánþega ber að standa skil á þessari greiðslu.
  • Greiðendur geta stótt um endurútreikning á greiðslunni í allt að 60 daga eftir gjalddaga með því að senda staðfestar upplýsingar um tekjur frá viðeigandi skattayfirvöldum erlendis.

Áætlaðar tekjur

  • Ef tekjuupplýsingar berast ekki frá lánþega eru tekjur hans áætlaðar.
  • Áætlunin byggir á þeim tekjuupplýsingum sem sjóðurinn hefur aflað á tekjuárinu á undan þar sem reiknaðar eru meðaltekjur greiðenda með sama menntunarstig.