Main Content

Algengar spurningar greiðendur

  • Fæ ég undanþágu frá afborgun ef ég fer aftur í nám?

    Við ákveðnar aðstæður er LÍN heimilt að veita undanþágu frá afborgun fari greiðandi námsláns aftur í nám:

    • Þú þarft að vera innritaður í nám sem er viðkennt sem lánshæft hjá LÍN, gildir líka þó þú hyggist ekki sækja um nýtt námslán.
    • Þú þarft að geta sýnt fram á að námsárangur eða loknar einingar á síðasta misseri samsvari kröfum um lánshæfi. Undanþága er ekki veitt frá afborgun sem fellur á fyrsta misserið í nýju námi.
    • Undanþáguheimildin er hugsuð fyrir þá sem eru í verulegum fjárhagsörðugleikum og því er einnig litið til þess hvort tekjur hafi minnkað milli ára eða séu mjög lágar.
    • Undanþágan kemur ekki sjálfkrafa þótt þú uppfyllir öll skilyrðin, það þarf að sækja um. Það er gert á Mínu svæði.
  • Hafa fjölskylduaðstæður mínar áhrif á hve háa afborgun ég á að greiða?

    Tekjur maka og fjöldi barna á framfæri lánþega hafa eingöngu áhrif á afborganir V-lána en það eru lán sem tekin voru árið 1982 eða fyrr.  Sjá nánar um gjalddaga og fjárhæðir.

  • Hvað gerist ef ég greiði ekki afborgun?

    Dráttarvextir falla á afborgun sem er ógreidd að liðnum eindaga. Ítrekunarbréf er sent lánþega og síðan innheimtuviðvörun bæði lánþega og ábyrgðamanni(mönnum) lánsins. Frekari kostnaður vegna  innheimtuaðgerða getur fallið á skuldina, sjá nánar um innheimtuferli LÍN.

  • Hvaða úrræði eru í boði hjá LÍN fyrir þá sem eiga í greiðsluerfiðleikum?

    Einstaklingar sem eru með frystingu á öðrum lánum sínum eða í skuldaaðlögun eiga kost á frystingu afborgana námslána til 3 ára. Undanþága frá einni afborgun í senn kemur til álita ef um aðstæður eins og atvinnuleysi, veikindi eða ástundun lánshæfs náms er að ræða. Sjá nánar um frestun afborgana.

  • Hve há er hver afborgun?

    Árleg afborgun er tvíþætt: föst afborgun og tekjutengd afborgun. Heildarafborgun hvers árs verður ekki hærri en 4,5% af tekjustofni þínum, framreiknuðum miðað við breytingu á vísitölu, árið á undan. Upphæðir afborgana eru mismunandi eftir lánaflokki.  Sjá nánar dæmi um greiðslur og reiknivél afborgana.

  • Hve lengi er ég að greiða lánið mitt upp?

    Það fer eftir upphæð eftirstöðva lánsins og tekjum þínum. Sem dæmi má nefna að lánþegi með 3 milljón króna námslán og 4 milljón króna árstekjur hvert ár er 23 ár að greiða upp lánið með venjulegum afborgunum. Sjá reiknivél afborgana. Þess skal getið að unnt er að greiða upp lán hvenær sem er eða greiða inn á lán umfram venjulegar afborganir.

  • Hvenær byrja ég að borga?

    • Endurgreiðsla nýs láns hefst aldrei fyrr en tveimur árum eftir námslok.
    • Gjalddagi fyrstu föstu greiðslunnar er 30. júní tveimur árum eftir námslok. Dæmi: Ef námsmaður hefur lokið námi vorið 2009 er fyrsta afborgun 30. júní 2011.
    • Fyrsta tekjutengda afborgunin er 1. september sama ár.
    • Eftir fyrsta afborgunarárið er gjalddagi föstu greiðslunnar alltaf 1. mars ár hvert.
  • Þarf að sækja um undanþágu á hverju ári?

    Já, greiðendur sem óska eftir undanþágu frá fastri afborgun vegna verulegra fjárhagsörðugleika sem orsakast af veikindum, námi, örorku  eða öðru verða að sækja um á hverju ári.
    Ef viðkomandi greiðanda reiknast tekjutengd afborgun í september og ástæður sem valda verulegum fjárhagsörðugleikunum eru enn fyrir hendi þarf að sækja um undanþágu einnig þá.

    • Sótt er um á Mínu svæði í gegnum heimabankann og þar kemur einnig fram hvaða gögn þurfa að fylgja umsókninni.
    • Greiðendur sem ekki hafa aðgang að Mínu svæði geta nálgast umsóknareyðublað í afgreiðslu LÍN.
    • Sækja má um undanþáguna í allt að 60 daga frá gjalddaga, betra er þó að ganga frá því fyrir gjalddagann.
  • Hvernig virkar innheimtuferlið?

    Greiðsluseðlar eru ekki sendir út nema greiðandi óski sérstaklega eftir því.
    Greiðendur sem hafa óskað eftir greiðsludreifingu hjá LÍN sjá greiðslurnar dreifðar í 4 eða 6 mánuði í heimabankanum. Þeir borga þá hverja mánaðarafborgun í byrjun hvers mánaðar.

    Greiðendur geta einnig óskað eftir því að greiðslan verði skuldfærð í einu lagi á kreditkort eða verið í greiðsludreifingu hjá sínum banka.

    Innheimtuferlið er annars á þessa leið:

    • Kröfur birtast í heimabönkum u.þ.b. 2 vikum fyrir gjalddaga. Greiðsluseðlar eru þá sendir út ef óskað hefur verið eftir þeim.
    • Eindagi er að jafnaði 3 virkum dögum eftir gjalddaga og reiknast dráttarvextir frá gjalddaga ef greiðslan er ekki greidd á eindaga.
    • Ef ekki er greitt fer ítrekun með viðvörun um milliinnheimtu til lánþega um 25 dögum eftir gjalddaga og aftur til greiðanda og ábyrgðarmanna um 45 dögum eftir gjalddaga ef skuldin er þá enn ógreidd.
    • Séu enn ekki gerð skil fer krafan til milliinnheimtu 60 dögum eftir eindaga.
    • Ef milliinnheimta ber ekki árangur fer krafan áfram í lögmannsinnheimtu. Athygli er vakin á því að slíkar innheimtuaðgerðir hafa í för með sér stóraukinn kostnað.
  • Hvernig tengist ég Mínu svæði?

    Hægt er að tengjast Mínu svæði í gegnum alla heimabanka, í gegnum island.is og í gegnum Innu – upplýsingakerfi framhaldsskólanna.

    Notendur þurfa fyrst að fara inn í heimabankann, Innu eða island.is með sínum lykilorðum sem þar gilda (LÍN gefur ekki út lykilorð).

    Þegar komið er inn á viðkomandi svæði þá þarf að finna Mitt svæði. Það er mismunandi eftir heimabönkum hvar Mitt svæði er að finna. Leiðbeiningar um staðsetningar í heimabönkum er að finna hér.

  • Hvenær eru gjalddagar afborgana?

    • Gjalddagar eru tvisvar á ári.
    • Föst afborgun S-, R- og G-lána er 1. mars ár hvert.
    • Fyrsta afborgun af nýjum lánum er þó 30. júní.  Það á aðeins við um fyrsta afborgunarárið.
    • Föst afborgun V-lána (1976-1982) er 1. júlí ár hvert.
    • Tekjutengd afborgun er 1. september ef um S-, R- eða G-lán er að ræða en 1. nóvember af V-lánum.

    Þegar tekjutengda afborgunin er fundin er í öllum tilfellum reiknað ákveðið hlutfall af tekjum fyrra árs, uppfært með vísitölubreytingum á milli tekjuárs og innheimtuárs. Upphæð föstu afborgunarinnar er dregin frá þeirri tölu sem þá kemur út. Sú upphæð sem eftir stendur þá er tekjutengda afborgunin.

    Ef tekjur eru lágar er ekki víst að greiðendum reiknist tekjutengd afborgun. Sjá dæmi um greiðslur

  • Tekjutengda afborgunun, hvenær liggur hún fyrir?

    Tekjutengda afborgunin er með gjalddaga 1. september (1. nóvember ef V-lán). Upphæðin ræðst af tekjustofni lánþegans árið á undan. LÍN reiknar tekjutengdu afborgunina eftir að skattálagning RSK liggur fyrir. Við útreikninginn er tekjustofninn margfaldaður með hlutfallslegri breytingu á vísitölu frá 1. júlí á tekjuöflunarárinu til 1. júlí á endurgreiðsluárinu.

    Lánþegi getur hvenær sem er áætlað upphæð afborgunar sinnar með því að setja viðeigandi forsendur inn í Reiknivél afborgana. Hér á vefsvæðinu eru einnig dæmi um greiðslur.

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN