Main Content

Greiðsluleiðir

Almennt

LÍN sendir ekki greiðsluseðla nema greiðandi hafi sérstaklega óskað eftir því. Greiðslukröfur birtast í heimabönkum (íslenskum heimabönkum lánþega). Það er því æskilegt að greiðendur námslána hafi aðgang að íslenskum heimabanka (netbanka). Nánari sundurliðun á hverri kröfu geta lántakendur séð á Mínu svæði LÍN.

Greiðendur sem óska eftir greiðsluseðli get sótt um það á Mínu svæði eða haft samband við Lánasjóðinn og óskað eftir að fá greiðsluseðla senda. LÍN mun þá póstsenda greiðsluseðla frá og með næstu afborgun. Ekki eru sendir greiðsluseðlar ef afborgun er í greiðsludreifingu hjá LÍN.

Vakin er athygli á því að kröfur birtast einungis í heimabanka greiðanda nema að óskað hafi verið eftir því við viðkomandi banka að tengja kröfurnar við heimabanka annars aðila (s.s. maka).

Greiðendum erlendis er bent sérstaklega á það hagræði sem felst í því að stofna íslenskan heimabanka og hafa þannig greiðari aðgang að upplýsingum hjá LÍN.

Unnt er að greiða afborgun með því að

  • Greiða kröfuna í íslenskum heimabanka.
  • Láta íslenskan viðskiptabanka sinn skuldfæra LÍN kröfur (beingreiðsla).
  • Greiða kröfuna hjá gjaldkera í íslenskum banka eða í gegnum þjónustusíma íslensk banka. Gefa þarf banka upp kröfunúmerið.
  • Sækja um til LÍN að afborganir verði skuldfærðar á kreditkort (Mastercard eða VISA).
  • Greiða í afgreiðslu LÍN, Borgartúni 21.
  • Senda greiðsluna til LÍN gegnum erlendan banka.