Skilmálar 6 mánaða
- Greiðendur geta sótt um greiðsludreifingu í allt að 60 daga frá gjalddaga. Athugið að dreifing er ávallt reiknuð á 6 kröfur talið frá gjalddaga ódreifðrar afborgunar. Sé dreifing reiknuð eftir gjalddaga geta því dráttarvextir hafa fallið á fyrstu dreifigreiðslu(r).
- Greiðsludreifing nær til allra lánaflokka, þ.e. V-lána, S-lána, R-lána og G-lána. Báðum árlegu afborgununum, það er fastri afborgun á fyrri hluta árs og tekjutengdri afborgun á seinni hluta árs, verður dreift á 6 mánuði talið frá gjalddaga ódreifðrar afborgunar. LÍN leitast hverju sinni við að jafna upphæð greiðslnanna. Ef afborgun er lægri en kr. 30.000 er henni þó ekki dreift.
- Ef endurreikna þarf dreifingu eftir að hluti afborgunar hefur verið greiddur hefur það í för með sér lækkun upphæðarinnar sem til dreifingar er. Upphæðinni sem eftir stendur er þó ávallt dreift á 6 kröfur talið frá gjalddaga ódreifðrar afborgunar.
- Hverja dreifigreiðslu þarf að greiða í heilu lagi. Kröfurnar þarf að greiða í íslenskum heimabanka, hjá gjaldkera í íslenskum banka, í gegnum þjónustusíma íslensks banka eða með beingreiðslusamningi sem lántaki gengur frá sjálfur gegnum íslenskan viðskiptabanka sinn.
- Kostnaður vegna framangreindrar greiðsludreifingar, svokallað afgreiðslugjald, er 2 % af fjárhæð afborgunar og er bætt við á fyrstu dreifikröfuna.
- LÍN áskilur sér rétt til að endurskoða skilmála, þ.á.m. upphæð afgreiðslugjalds í janúar ár hvert. Verði breytingar á skilmálum kynnir LÍN þær á vefsvæði sínu, lin.is.
- Verði ekki staðið í skilum með einstaka greiðslur telst greiðsludreifingin fallin úr gildi og áskilur LÍN sér þá rétt til að senda afborgunina í heild sinni til frekari innheimtu. Sjá nánar um ferli vegna vanskila undir almenn innheimta á lin.is.
- Hvor aðili um sig getur sagt upp samkomulagi þessu um greiðsludreifingu án fyrirvara.