Sérgreiðslur
Almennt
- Unnt er að greiða inn á lán eða greiða upp lán hvenær sem er.
- Ekkert uppgreiðslugjald er tekið.
Greiðendur og ábyrgðarmenn geta séð stöðu láns á Mínu svæði.*- Greiða skal með millifærslu inn á reikning LÍN, 0111-26-205, kt. 710169-0989.*
- Senda þarf staðfestingu eða kvittun á netfangið lin@lin.is og hafa kennitölu lánþega í skýringu.
- Sérgreiðsla hefur ekki áhrif á reglubundnar afborganir.
* Ef lán er í lögfræðiinnheimtu sést ekki heildarskuldastaða á Mínu svæði, viðkomandi lögmannsstofa gefur hana upp og greiðsla þarf að fara fram í gegnum hana.
Ógjaldfallin uppgreiðsla
- Lánþega er heimilt að greiða upp námslán fyrr en ákvæði skuldabréfs kveða á um.
- Lánþegi sem greitt hefur upp ógjaldfallið námslán sitt getur óskað eftir að fá endurgreiðslu sem nemur kostnaðarlækkun sjóðsins vegna uppgreiðslunnar.
- Skilyrði er að lánþeginn hafi greitt af námsláninu í a.m.k. fimm ár fyrir uppgjörið.
- Við mat á endurgreiðslutíma og framtíðarafborgunum af námsláni án uppgreiðslu skal tekið mið af áætluðum framtíðartekjum lánþegans og þær núvirtar með þeim vöxtum sem sjóðurinn greiðir af teknum lánum.
- Framtíðartekjurnar skulu þó aldrei áætlaðar það lágar að endurgreiðslutími án uppgreiðslu verði umfram 15 ár.