Almenn innheimta
Almennt
- Kröfur birtast í heimabönkum u.þ.b. 2 vikum fyrir gjalddaga. Greiðsluseðlar eru þá sendir út ef óskað hefur verið eftir þeim.
- Eindagi er að jafnaði 3 virkum dögum eftir gjalddaga og reiknast dráttarvextir frá gjalddaga ef greiðslan er ekki greidd á eindaga.
- Ef ekki er greitt fer ítrekun með viðvörun um milliinnheimtu til lánþega um 25 dögum eftir gjalddaga og aftur til greiðanda og ábyrgðarmanna um 45 dögum eftir gjalddaga ef skuldin er þá enn ógreidd.
- Séu enn ekki gerð skil fer krafan til milliinnheimtu 60 dögum eftir eindaga.
- Ef milliinnheimta ber ekki árangur fer krafan áfram í lögmannsinnheimtu.
Greiðsludreifing
- Eindagi afborgana er að jafnaði þriðja virka dag eftir gjalddaga, á það einnig við um fyrstu afborgun dreifðrar greiðslu.
- Ef vanskil verða á greiðsludreifingu LÍN er send út áminnig 7 dögum eftir eindaga.
- Ef tveir gjalddagar eru í vanskilum er sent innheimtubréf til greiðanda og ábyrgðarmanns 20 dögum eftir 2. gjalddaga.
- Ef þrír gjalddagar eru í vanskilum er innheimtuviðvörun send til greiðanda og ábyrgðarmanns 20 dögum eftir 3ja gjalddaga þar sem gefinn er 10 daga frestur til að gera upp skuldina.
- Að frestinum liðnum er krafan send til lögmanna í innheimtu og greiðsludreifing felld niður. Sama ferli á við hvort sem um 4 eða 6 mánaða greiðsludreifingu er að ræða.
Athugið; þegar sótt er um greiðsludreifingu dreifast greiðslur frá gjalddaga (t.d. 1. mars, eða 1. sept.), ekki frá umsóknardegi greiðsludreifingar.
Sé sótt um greiðsludreifingu eftir gjalddaga (þó innan 60 daga frá gjalddaganum), geta fyrstu dreifigreiðslur verið komnar fram yfir eindaga og þarf þá að gera skil á þeim strax.