Löginnheimta
Löginnheimta
- Reynist innheimta enn árangurslaus fer krafan áfram til löginnheimtu.
- Löginnheimta hefur í för með sér stóraukinn kostnað.
- Ef skuld er í löginnheimtu skulu greiðendur snúa sér beint án milligöngu LÍN til viðkomandi lögmannsstofu vegna greiðslu.
- Ef krafa á hendur lánþega er óuppgerð í innheimtu hjá lögmönnum þegar ný afborgun kemur á gjalddaga fer nýja krafan beint til lögmanna og gefst greiðendum kostur á að gera upp vanskil sín gagnvart LÍN í heild hjá lögmönnum án milligöngu LÍN.
Löginnheimta LÍN er í umsjón Juris almennu lögfræðistofunnar og TCM / Mandat.