Greiðsluseðlar
Greiðsluseðlar eru almennt ekki sendir út. Greiðslukröfur birtast í heimabönkum u.þ.b. 2 vikum fyrir gjalddaga.
Unnt er að óska eftir að fá póstsenda greiðsluseðla með því að merkja við það á Mínu svæði eða hafa samband við LÍN. Póstsending greiðsluseðla tekur þá gildi frá og með næsta gjalddaga eftir umsókn.
Ef greitt er af R- eða G-láni er lagt á seðilgjald skv. heimild í lögum um LÍN.