Greiðendur búsettir erlendis
Þeir greiðendur sem búsettir eru erlendis og eiga eftir að senda LÍN staðfestar upplýsingar um tekjur sínar árið 2011 í búsetulandinu eru beðnir um að gera það hið fyrsta.
Að öðrum kosti geta þeir átt von á því að upphæð tekjutengda gjalddagans 1. september 2012 verði áætluð. Einnig er minnt á að gott er að sjóðurinn hafi rétt netfang allra greiðenda og upplýsingar um heimilisfang hjá greiðendum búsettum erlendis.