Umsóknir um undanþágu og greiðsludreifingu
Greiðendur eru minntir á að frestur til að sækja um undanþágu frá afborgun eða greiðsludreifingu er 60 dagar frá gjalddaga. Þetta ættu greiðendur með afborgun á gjalddaga 30. júní eða 1. júlí að hafa í huga.
Nú geta greiðendur með gjalddaga 1. september einnig sótt um undanþágu á Mínu svæði hjá LÍN. Mikilvægt er að skila öllum gögnum sem beðið er um með umsóknum til að hægt sé að afgreiða þær fljótt og vel. Best er að sækja um fyrr en seinna þar sem umsókn um undanþágu frestar ekki innheimtuaðgerðum nema ef og þegar hún er samþykkt.