Main Content

Upphæðir fastra afborgana 2011

  • 04.01.2011

Næsti gjalddagi námslána er 1. mars nk. Þá kemur hin svokallaða fasta afborgun, sem þýðir að allir lánþegar með sama lánaflokk borga sömu upphæð óháð tekjum.

Þann 1. september kemur svo tekjutengda afborgunin sem reiknast út frá tekjum 2010. Athugið að nýir greiðendur sem luku námi vorið eða sumarið 2009 borga föstu afborgunina ekki fyrr en 30. júní.

Upphæð marsafborgunar er mismunandi eftir lánaflokkum. Hægt er að sjá hvaða lánaflokk/a greiðandi er með inni á Mínu svæði/Greiðendur. Upphæðirnar eru í ár: S-lán gjalddagi 1. mars verður kr. 64.151 og R- og G-lán gjalddagi 1. mars kr. 108.330.