Hverjir eiga rétt á jöfnunarstyrk
Nemendur á framhaldsskólastigi sem þurfa að stunda nám fjarri heimahögum og fjölskyldu geta átt rétt á jöfnunarstyrk.
Lögheimili námsmanns má ekki vera í nágrenni við skóla en nánari skýringar er að finna á síðunni svæði í nágrenni skóla.
Eitt af grunnskilyrðum fyrir jöfnunarstyrk er einnig að nemandi geti sýnt fram á tengsl við lögheimili sitt.
Námið verður að vera að lágmarki eins árs skipulagt nám við skóla sem falla undir lög um framhaldsskóla/menntaskóla.
Athugið að nemandi getur ekki fengið bæði jöfnunarstyrk og námslán á sömu önn.
Nemendur í launuðu starfsnámi eiga ekki rétt á jöfnunarstyrk.