Main Content

Umsókn um jöfnunarstyrk

Hvernig er hægt að sækja um styrkinn?

Nemendur geta sótt um styrkinn í gegnum heimabankann sinn, Innu, vefkerfi framhaldsskólanna og island.is, sjá Mitt svæði.

Umsóknarfrestur er til 15. október á haustönn og 15. febrúar á vorönn.

Berist umsókn hins vegar eftir að frestur rennur út, þ.e.a.s. eftir 15. október og 15. febrúar skerðist styrkurinn frá og með 1. nóvember og 1. mars um 15%.

Berist umsóknin meira en mánuði eftir að umsóknarfrestur rann út, þá afgreiðist hún með umsóknum næstu annar.

Eigi einhver ekki kost á að sækja um á Mínu svæði getur hann óskað eftir eyðublaði á pappír hjá Lánasjóðnum.

Póstfangið er: Lánasjóður íslenskra námsmanna, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.