Main Content

Mitt svæði

Tengjast Mínu svæði beint í gegnum island.is

Til að skrá þig inn notar þú veflykil ríkisskattstjóra. Þetta er sami veflykill og notaður er við gerð skattframtals. Einnig er hægt að nota rafræn skilríki á debetkorti. Tengjast Mínu svæði LÍN.

 

Vantar þig veflykil? Þá getur þú sótt um nýjan veflykil á þjónustuvef ríkisskattstjóra.

Mitt svæði er einkasvæði þitt hjá LÍN 

Þar er m.a. að finna umsóknir um námslán, jöfnunarstyrk og frestun á afborgun námslána.  Þar geta námsmenn og greiðendur einnig fylgst með stöðu sinna lána á persónulegum síðum.

Einnig er hægt að tengjast gegnum heimabanka og Innu:

Hvar finn ég Mitt svæði í heimabankanum mínum?

Á eftir hverjum innskráningaraðila hér ofar á síðunni er mynd sem sýnir hvar Mitt svæði LÍN er að finna á viðkomandi vef eftir innskráningu. Einnig eru hér allar myndirnar (pdf) í einu skjali sem sýnir hvar á viðkomandi vefjum er tenging inn á Mitt svæði LÍN.

Vandamál við að tengjast Mínu svæði

Tenging við Mitt svæði frá sumum heimabönkum er háð því að vefvafrinn (e. browser) leyfi sprettiglugga (pop-up) frá bankasvæðinu. Fáir þú ekki upp forsíðu Míns svæðis þegar þú ert í heimabankanum og smellir á "Tengjast LÍN", gæti verið að þú þurfir að stilla að leyfa sprettiglugga frá bankasvæðinu. Fáir þú gula rönd ofarlega á skjáinn með viðvörun um "pop-up is blocked" þá er ráðið að smella á röndina og velja "always allow pop-up from this site". Vinsamlega hafið í huga að orðalag viðvörunarinnar getur verið mismunandi eftir vöfrum. Dugi þetta ekki eru hér nánari leiðbeiningar um stillingu sprettiglugga.