Main Content

Námsmenn

Sækja um í fyrsta sinn - að hverju þarf að huga

  • Námsmenn sem stunda lánshæft nám geta sótt um námslán hjá LÍN.
  • Ákveðnar reglur gilda um hvaða nám er lánshæft, um námsframvindu, tekjumörk og fleira sem námsmenn geta kynnt sér hér á vefnum.
  • Skilyrði sem umsækjendur þurfa að uppfylla eru m.a. að vera fjárráða (18 ára), ef þeir hafa áður fengið lán þá þurfa þeir að vera í skilum við sjóðinn.  Einnig gilda ákveðin búsetuskilyrði og/eða skilyrði um tengsl við Ísland sem íslenskir og erlendir ríkisborgara þurfa að uppfylla.
  • Mitt svæði er einkasvæði viðskiptavina LÍN þar sem þeir geta sótt um námslán, skilað gögnum og skoðað stöðu sinna mála.

Jöfnunarstyrkur

  • ATH Allar upplýsingar um jöfnunarstyrk er að finna undir flipanum jöfnunarstyrkur.

Námsmenn erlendis - sértæk atriði

  • Hægt er að sækja um námslán vegna náms erlendis.  Mikilvægt er að kynna sér hvaða reglur gilda en hægt er að skoða hvaða skólar eru á skrá hjá LÍN. 
  • Námsmenn erlendis þurfa að skila inn námsárangri þegar hann liggur fyrir. 
  • Umboðsmaður gegnir mikilvægu hlutverki á meðan námsmaður stundar sitt nám erlendis.

Skiptinemar - sértæk atriði

  • Ef námsmaður ætlar í skiptinám þarf að sækja sérstaklega um það á Mínu svæði.
  • Fyrst er sótt um námslán í  heimalandi og síðan er sótt um breytta framfærslu.
  • Mikilvægt er að kynna sér þær reglur sem gilda um skiptinám áður en sótt er um.

Annað nám en háskólanám

  • Sérnám á Íslandi og erlendis er lánshæft að einhverju leyti.  Mikilvægt er að kynna sér vel hvaða möguleikar eru til staðar.

Réttindi erlendra ríkisborgara

  • Erlendir ríkisborgarar sem eiga lögheimili á Íslandi og stunda lánshæft nám geta átt rétt á námslánum.

Ábyrgð þín

  • Umsækjendur verða að kynna sér vel úthlutunareglur LÍN og vera meðvitaðir um skyldur sínar gagnvart sjóðnum.
  • Skila skal þeim gögnum sem námsmenn kunna að verða beðnir um eins fljótt og auðið er.

  • Ef gögnum er ekki skilað innan 2ja mánaða er heimilt að fella umsókn úr gildi.