 |  | Staðfesting á skólavist: Staðfestinguna verða þeir námsmenn á Íslandi að senda sem borga há skólagjöld og einnig námsmenn erlendis sem eru að hefja nýtt nám. Umsóknin tekur ekki formlega gildi fyrr en slík staðfesting hefur borist sjóðnum. |
 | Útreikningur á láni: LÍN birtir á Mínu svæði námsmanna Lánsáætlun og staðfestir þannig gildar umsóknir. Fyrirframgreiðsla skólagjalda hefst til þeirra sem eiga rétt á því. |
 | Skuldabréf: Þeir sem eru að sækja um námslán í fyrsta sinn eða hafa gert árshlé á námi sínu fá sent skuldabréf til undirritunar. |
 | Enskumælandi lönd: Senda þarf LÍN upplýsingar um skólagjöld og styrk/styrkleysi fyrir hverja önn eða allt námsárið. |
 | Endanleg tekjuáætlun: Staðfesta verður tekjuáætlun áður en útborgun haustlána fer fram. |
 | Námsárangur: Námslán eru afgreidd þegar námsárangur hefur borist. Skólar á Íslandi senda árangurinn beint til LÍN, en námsmenn erlendis verða að sjá um það sjálfir. Þeir sem ekki taka próf á miðjum vetri verða að senda staðfestingu á námsástundun. |
 | Útborgun láns: Lágmarksnámsárangur er 18 ECTS einingar eða ígildi þeirra. Greiðslan er lögð inn á bankareikning námsmanns. |
 | Skattframtal: Allir lánþegar verða að staðfesta endanlegar tekjur með skattframtali. Námsmenn á Norðurlöndunum verða til viðbótar íslensku skattframtali að senda afrit af álagningarseðlum eða skattframtali í námslandinu. Barnlausir einstaklingar á Íslandi í leiguhúsnæði verða að skila leigumiða (RSK 2.02). |