ECTS - einingar
ECTS stendur fyrir "European Credit Transfer and Accumulation System" og er notað sem staðall til þess að bera saman og meta námsárangur og frammistöðu nemenda.
Námsmenn fá ákveðinn fjölda ECTS-eininga fyrir staðin fög og námsskeið. Eitt námsár jafngildir 60 ECTS-einingum, sem samsvara 1500-1800 klukkutímum í námi.
Allir háskólar á Íslandi hafa tekið upp ECTS-einingakerfið. LÍN mun þannig meta allt lánshæft nám í ECTS-einingum þegar námslán eru reiknuð, jafnvel þó aðrir skólar á Íslandi og skólar utan EES svæðisins noti ekki ECTS-einingar.
Fullt nám í skólum þar sem önnur einingakerfi eru notuð telst þannig ígildi 60 ECTS-eininga og t.d. 75% nám samkvæmt skipulagi skóla ígildi 45 ECTS-eininga.