Main Content

Lánsréttur íslenskra ríkisborgara

  • 02.09.2011

Íslenskir ríkisborgarar sem stunduðu nám erlendis á síðasta skólaári fá áfram námslán óháð því hvar lögheimili þeirra er skráð.

Íslenskir ríkisborgarar sem hafa unnið í 12 mánuði á Íslandi fyrir umsóknardag eru lánshæfir að öðrum skilyrðum uppfylltum. Þeir sem hafa starfað skemur en 12 mánuði þurfa að hafa á búið á Íslandi í tvö ár samanlagt síðustu fimm ár.

Aðrir Íslenskir ríkisborgarar þurfa að hafa átt samfellda búsetu hér í fimm ár til að geta sótt um námslán.

Í þeim tilfellum þar sem ofangreind skilyrði eru ekki uppfyllt verður hvert tilfelli fyrir sig metið út frá þeim reglum sem gilda þar um.
 

 

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN