Endanleg tekjuáætlun 2011
Áður en hægt er að afgreiða lán vegna náms á haustönn 2011 verða umsækjendur að skila endanlegri tekjuáætlun til LÍN.
Það er hægt að gera með heimsókn á "Mitt svæði" hjá LÍN. Námsmenn geta tengst Mínu svæði með veflykli ríkisskattstjóra beint frá heimasíðu LÍN, velja "Mitt svæði" lengst til hægri í rauðu valröndinni. Einnig er hægt að tengjast Mínu svæði frá íslenskum heimabönkum og Innu (vef framhaldsskólanna).