Úthlutun haustlána 2011
Almenn úthlutun hefst 5. janúar 2012. Úthlutun lána til námsmanna erlendis hefst 20. desember nk.
Skilyrði þess að úthlutun geti hafist er að fullnægjandi námsárangur og önnur umbeðin gögn hafi borist sjóðnum. Námsmenn geta kannað stöðu sína á Mínu svæði hjá LÍN. Hægt er að tengjast Mínu svæði með veflykli ríkisskattstjóra beint frá heimasíðu LÍN, velja "Mitt svæði" lengst til hægri í rauðu valröndinni. Einnig er hægt að nálgast Mitt svæði frá íslenskum heimabönkum og Innu (vef framhaldsskólanna).