Umsóknir um sumarlán 2013
Umsóknareyðublað um sumarlán 2013 hefur nú verið opnað á Mínu svæði.
Eftirfarandi reglur gilda um sumarlán, sjá grein 2.1.1 í úthlutunarreglum LÍN:
Nám á sumarönn tilheyrir undangengnu námsári. Námsmaður þarf að ljúka að lágmarki 12 ECTS-einingum á sumarönn til að eiga rétt á sumarláni. Aldrei er veitt meira lán en sem nemur 20 ECTS-einingum á sumarönn og 80 ECTS-einingum samtals á hverju námsári. Sækja þarf sérstaklega um sumarlán. Til að eiga rétt á sérstöku skólagjaldaláni á sumarönn þarf námsmaður að ljúka a.m.k. 60 ECTS á námsárinu, sbr. gr. 4.8.