Main Content

Hlutverk umboðsmanns

Námsmenn erlendis verða að hafa umboðsmann á Íslandi. Nafn, kennitölu og símanúmer umboðsmanns þarf að gefa upp á lánsumsókn.

Allur bréfapóstur frá lánasjóðnum er sendur á aðsetur umboðsmanns eins og það er skráð í þjóðskrá.

Hlutverk umboðsmanns er að vera n.k. milliliður milli LÍN og námsmanns erlendis.

Umboðsmaður hefur umboð frá námsmanni til að annast mál hans gagnvart lánasjóðnum og getur umboðsmaðurinn undirritað gögn og skuldabréf fyrir hönd námsmannsins. 

Námsmaður getur skipt um umboðsmann með því að fylla út eyðublaðið Breytingar á umsókn á Mínu svæði.

Umboðið fellur niður þegar námsmaðurinn er hættur í námi erlendis.