Réttindi erlendra ríkisborgara
Ríkisborgarar ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) sem hafa búsetu hér á landi vegna starfs síns, fjölskyldur þeirra og aðrir sem eru eða hafa verið á þeirra framfæri eiga rétt á námslánum eins og íslenskir námsmenn, þegar samhengi er á milli náms og fyrra starfs hér á landi. Ef námið er ótengt fyrra starfi hér á landi þarf viðkomandi að hafa búið samfellt fimm ár á Íslandi áður en sótt er um námslán.
Erlendir ríkisborgarar sem giftir eru íslenskum ríkisborgurum, og hafa átt lögheimili á Íslandi í að lágmarki 2 ár sl. 5 ár áður en nám hefst, geta sótt um lán vegna náms sem stundað er á Íslandi eða Norðurlöndunum.
Ríkisborgarar ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) sem starfa ekki sem launþegar eða sjálfstæðir atvinnurekendur hér á landi, fjölskyldur þeirra og aðrir sem eru eða hafa verið á þeirra framfæri, eiga rétt á lánum eftir 5 ára búsetu hér á landi.
Aðrir erlendir ríkisborgarar geta einnig átt rétt á námslánum ef íslenskir námsmenn njóta sambærilegra réttinda í heimalandi þeirra.
Teljir þú þig eiga rétta á námslánum frá LÍN, sbr. framangreint, verður þú að leggja fram staðfestar upplýsingar um stöðu þína, til að mynda skattframtöl og skráningu Þjóðskrár á komu þinni til landsins eða önnur sambærileg gögn. Ef umsækjandi er farandlaunþegi frá Evrópska efnahagssvæðinu (EES) óskar sjóðurinn eftir því að gert sé grein fyrir samhengi milli náms og fyrra starfs hér á landi.