Main Content

Skiptinám

  1. Skiptinemar eiga að sækja um námslán vegna náms í þeim skóla sem þeir eru skráðir í á Íslandi og munu væntanlega útskrifast frá. Ekki sækja um lán vegna náms erlendis
  2. Skiptinemar geta óskað eftir að fá sömu framfærslu og gildir í því landi eða skóla sem þeir heimsækja.  Hægt er að gera það með sérstakri rafrænni skiptinemaumsókn inn á Mitt svæði.  Til að slík beiðni sé afgreidd, verður að hafa borist staðfesting til sjóðsins á skiptináminu.  LÍN fær á hverju ári senda lista yfir væntanlega Erasmus- og Nordplus-skiptinema, en skólarnir á Íslandi verða sjálfir að senda staðfestingar fyrir aðra skiptinema (upplýsingar verða að innihalda nafn og kennitölu, námsstað, tímabil og hvort styrkur sé veittur eða ekki).
  3. Styrkur sem veittur er vegna skiptinámsins kemur ekki til lækkunar á námslánum þar sem Nordplus- og Erasmus-styrkþegar eiga ekki rétt á ferðaláni frá LÍN.  Aðrir skiptinemar sem ekki fá styrk, geta sótt um ferðalán hjá sjóðnum. 
  4. Sömu námskröfur eru gerðar til skiptinema eins og gerðar eru til þeirra í náminu á Íslandi.  Fullt nám á skólaári telst vera 60 ECTS-einingar, en ljúka þarf a.m.k. 18 ECTS-einingum á skólaárinu til að eiga rétt á námsláni.
  5. Ekki senda námsárangur erlendis frá beint til LÍN, heldur skal senda hann til skólans á Íslandi sem metur hann inn í námið hér og staðfestir svo við LÍN.
  6. Skiptinemar eiga rétt á því að láta taka tillit til námskeiða umfram þann heildareiningafjölda sem þarf til lokaprófs, að hámarki þó 18 ECTS-einingar.
  7. Ef skiptinemar fara til Norðurlandanna og verða að færa lögheimili sitt þangað, þá er æskilegt að þeir tilnefni einhvern tengilið hér á landi sem getur tekið við bréfasendingum frá sjóðnum ef til þess kemur.