Main Content

Aukið svigrúm / Undanþágur

Vegna veikinda, barnsburðar, örorku og lesblindu

Námsmenn geta sótt um aukið svigrúm í námi ef veikindi, barnsburður, örorka eða annað s.s. lesblinda gera það að verkum að þeir geta ekki skilað lágmarksárangri í námi.

Þetta er gert þannig að ákveðnum einingafjölda er bætt við þann einingafjölda sem námsmaðurinn lýkur á hverri önn.

Námsmaður þarf alltaf að skila námsárangri áður en metið er hversu mikið þarf að bæta við til að lágmarksárangur náist.

Ef námsmaður nýtir sér þessar undanþágur er því aldrei veitt lán fyrir meiru en sem svarar 18 ECTS-einingum.

Sjá þar reglur sem gilda um þessi tilvik á viðkomandi síðum hér á vefnum.

Vegna fjöldatakmarkana

Ef námsmaður hefur skilað fullnægjandi árangri á fyrsta misseri en ekki komist áfram eingöngu vegna fjöldatakmarkana má veita honum lán til að endurtaka misserið einu sinni.

Námsframvinda við sérstakar aðstæður

Heimilt er að bæta við lánsrétti upp að 18 ECTS-einingum ef námsmaður getur ekki lokið lágmarksárangri vegna sérstakra aðstæðna.

  • Námsmaður er að ljúka námi og uppfyllir ekki skilyrði um námsframvindu á misserinu. Heimilt er að veita honum lán vegna 18 ECTS-eininga eða ígildi þeirra ljúki hann þeim á haust- eða vormisseri.
  • Námsmaður hefur dvalið erlendis sem skiptinemi og fengið námskeiðin metin sem valnámskeið umfram lágmarkseiningafjölda til lokaprófs.
  • Námsmaður stundar framhaldsháskólanám og hefur gert persónubundna námsáætlun um fulla námsframvindu til loka námsins sem yfirstjórn námsgreinar hefur staðfest. Lokaafgreiðsla lánsins skv. þessari grein fer þó ekki fram fyrr en staðfest hefur verið að námsmaðurinn hafi uppfyllt öll skilyrði til útskriftar.