Main Content

Vegna örorku eða lesblindu

Lágmarkseiningafjöldi til að fá námslán er 18 ECTS-einingar. Nái námsmaður því ekki vegna örorku eða lesblindu er hægt að bæta allt að 9 ECTS-einingum við námsárangurinn

Það þýðir að námsmaður þarf að hafa lokið að lágmarki 9 ECTS-einingum á önn eða tilsvarandi hlutfalli á fjórðungi í fjórðungaskólum til að eiga rétt á slíkri undanþágu,

Sem dæmi má nefna að námsmaður með örorku sem lýkur 9-17 ECTS-einingum getur  því fengið lán sem nemur greiðslu fyrir 18 ECTS-einingum.

Leggja þarf fram beiðni um slíka undanþágu ásamt  örorkuvottorði (a.m.k. 75% örorka) eða greiningu sérfræðings á lesblindu.

Námsárangur þarf alltaf að liggja fyrir í þessum tilvikum.