Vegna barnsburðar
Lágmarkseiningafjöldi til að fá námslán er 18 ECTS-einingar. Ef námsmaður eignast barn á meðan á námi stendur og nær ekki þessu lágmarki má bæta allt að 13 ECTS-einingum við námsárangurinn.
- Námsmaður þarf að hafa lokið að lágmarki 5 ECTS-einingum á önninni til að eiga rétt á slíkri undanþágu.
- Skilyrði er að námsmaður hafi áður skilað fullnægjandi árangri í lánshæfu námi (18 ECTS-einingum eða sambærilegt).
- Samanlagt skal þó viðbótarsvigrúm beggja foreldra vegna einnar fæðingar ekki vera meira en sem nemur 13 ECTS- einingum.
Þetta svigrúm getur námsmaður nýtt sér frá seinni hluta meðgöngu og þar til barnið er orðið eins árs.