Main Content

Lokun skuldabréfs

Lokun skuldabréfs

  • Ef námsmaður sækir ekki um námslán í eitt skólaár gerir lánasjóðurinn ráð fyrir að hann sé hættur námi og hefst þá undirbúningur að lokun skuldabréfs hans.
  • Námsmaðurinn fær senda tilkynningu frá sjóðnum um að námslokin eða lokunardagurinn miðist við lok þess námsárs þegar hann fékk síðast námslán.
  • Vextir byrja að reiknast á lánið frá og með lokunardegi skuldabréfs.
  • Afborganir á láninu hefjast síðan tveimur árum eftir þennan lokadag.

Frestun á lokun skuldabréfs

  • Ef námsmaðurinn er ennþá í fullu lánshæfu námi en er hættur að sækja um námslán getur hann sótt um frestun á lokun skuldabréfsins.
  • Hann þarf þá að leggja fram gögn sem sanna að hann sé ennþá í námi og sé með lánshæfan árangur.

Ef námsmaður gerir hlé á námi í meira en eitt skólaár á hann ekki rétt á því að lokunardegi skuldabréfs sé frestað.

Hefji námsmaður aftur nám seinna getur hann sótt um frest á afborgunum lána að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.