Main Content

Námslengd

Námslánatíminn er reiknaður í einingum.

Grunnnám

Námsmaður á rétt á láni fyirr 180 ECTS-einingum í grunnnámi. Með grunnnámi er átt við sérnám, grunnháskólanám og einkanám í tónlist.

Meistaranám

Námsmaður á rétt á láni fyir 120 ECTS-einingum í meistaranámi eða sambærilegu námi að loknu þriggja ára háskólanámi.

Viðbótareiningar

Að auki á hver námsmaður rétt á láni fyrir 120 ECTS-einingum til viðbótar á grunn- og meistarastigi að eigin vali.

Heimilt er að veita námsmanni undanþágu frá ofangreindum hámörkum og veita lán fyrir allt að 60 ECTS-einingum til viðbótar ef:

  • Samanlögð fyrri lán hjá sjóðnum eru lægri en 3 milljónir kr.
  • Námsmaður hefur áður staðist lokapróf í lánshæfu námi og á ólokið 60 ECTS-einingum eða minna í öðru lánshæfu námi.
  • Námsmaður hefur áður fengið undanþágu í a.m.k. 3 aðstoðarár vegna örorku eða lesblindu. 

Heildarsvigrúm til að ljúka tiltekinni námsbraut getur þó aldrei verið meira en 600 ECTS-einingar.

Doktorsnám

Námsmaður í doktorsnámi á rétt á láni fyrir 180 ECTS-einingum vegna þess náms. Þó geta lán hans hjá sjóðnum aldrei farið umfram 600 ECTS-einingar.