Fimm og tíu ára regla
Nýja einingareglan gildir fyrir þá sem byrja í nýju námi námsárið 2011-2012.
Lánþegar sem voru í lánshæfu námi 2009-2010 og/eða 2010-2011 og halda áfram í sama námi 2011-2012 verða áfram á eldri reglu, þ.e. fimm og tíu ára reglu.
Skv. fimm og tíu ára reglunni er námslánatíminn er reiknaður í svokölluðum aðstoðarárum. Eitt aðstoðarár er tvær annir og einn önn er því hálft aðstoðarár.
Fimm ára reglan
Námsmaður getur almennt fengið lán í samanlagt fimm aðstoðarár. Er þar átt við allt lánshæft nám á öllum námsstigum. Námsmaður í sérnámi eða grunnháskólanámi á þó möguleika á að fá lán í eitt aðstoðarár til viðbótar (sex aðstoðarár samanlagt) ef:
- Samanlögð fyrri lán hjá sjóðnum eru lægri en 3 milljónir kr.
- Námsmaður hefur áður staðist lokapróf í lánshæfu námi og á ólokið 60 ECTS-einingum eða minna í öðru lánshæfu námi.
- Örorka og veikindi sem námsmaður hefur áður fengið undanþágu frá námsframvindu vegna eru fyrir hendi.
Tíu ára reglan
Einungis þeir námsmenn sem stunda framhaldsháskólanám geta fengið lán umfram þann árafjölda sem tiltekinn er í fimm ára reglunni hér að ofan, þ.e. í allt að tíu aðstoðarár samanlagt. Með framhaldsháskólanámi er átt við; meistaranám, doktorsnám og sambærilegt nám.