Main Content

Kröfur um framvindu

Hvenær á námsárinu er greitt út?

  • Byrjað er að borga út lán fyrir haustönn í janúar að loknum 18-30 ECTS-einingum og vegna vorannar í lok apríl fyrir 18 eða fleiri ECTS-einingar.
  • Heimilt er að borga út á öðrum tímum hafi námsmaður uppfyllt kröfur um námsárangur og sent umbeðin gögn.
  • Lánveitingum vegna námsársins 2010-2011 skal lokið fyrir 15. janúar 2012, eftir það eru ekki afgreidd lán vegna námsársins.

Upphæð útgreidds láns

  • Upphæð námslánsins fer m.a. eftir einingafjöldanum sem námsmaður klárar.
  • Greidd er ákveðin upphæð fyrir hverja einingu og með því að margfalda upphæðina með fjölda eininga færðu út lánsupphæðina.

Kröfur um námsframvindu

Námsmaður þarf að ná að lágmarki 18 ECTS-einingum eða ígildi þeirra á hverri önn til að eiga rétt á láni.

  • Hins vegar er alltaf lágmarkskrafa að námsmenn séu skráðir í fullt lánshæft nám.
  • Fullt nám er skilgreint sem 60 ECTS-einingar á námsári eða 30 ECTS-einingar á misseri.
  • Hægt er að fá viðbótarlán ef námsmaður leggur stund á sumarnám en þó ekki fyrir fleiri en samtals 80 ECTS-einingum á námsárinu.
  • Námsmaður þarf að ljúka að lágmarki 12 ECTS-einingum á sumarönn til að eiga rétt á láni yfir sumartímann. Mest er lánað fyrir 20 einingum yfir sumarið. Sækja þarf sérstaklega um sumarlán.
  • Námsmaður sem lýkur fleiri en 30 ECTS-einingum á misseri getur nýtt umframeiningarnar á öðru misseri sama námsárs svo framarlega að lágmarksárangi (18 einingum) er náð á því misseri eða flutt umframeiningarnar á síðari ár í sama námsferli.