Main Content

Bóka- og ferðalán

Lán vegna bóka og efniskostnaðar

  • Námsmaður á rétt á viðbótarláni vegna bókakaupa, 800 kr. á hverja lokna ECTS-einingu í námi á Íslandi. Sambærileg regla gildir fyrir nám erlendis.
  • Ekki þarf að sækja sérstaklega um þessi lán.

Ferðalán

Lán vegna ferðakostnaðar miðast við ákveðna upphæð eftir landinu sem námið er stundað í.

Hvorki þarf að sækja sérstaklega um ferðalán né leggja fram ferðagögn.

Nám erlendis

  • Ferðalán á hvern einstakling, námsmann og maka er 35.000 kr. á mann í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, en 40.500 kr. annarsstaðar í Evrópu, 52.000 kr. í Norður-Ameríku og 92.000 kr. annarsstaðar.
  • Lán vegna ferða barna er 10% af þessum upphæðum ef barnið er yngra en 2ja ára, 75% vegna barna á aldrinum 2ja til 12 ára og 100% fyrir börn eldri en 12 ára.

Nám á Íslandi

  • Ferðalán vegna náms á Íslandi er 18.000 kr. á einstakling, námsmann og maka og sömu hlutföll gilda um ferðir barna eins og í ferðalánum vegna náms erlendis.
  • Til að fá ferðalán vegna náms á Íslandi þarf námsmaðurinn að búa minnst 100 km frá höfuðborgarsvæðinu eða öðru skólasvæði.

Ef maki er líka á námslánum á námsmaður ekki rétt á ferðaláni fyrir hann og ferðalán vegna barna skiptist jafnt milli beggja námsmanna.