Meðlags- og makalán
Meðlagslán
- Námsmaður getur sótt um viðbótarlán vegna meðlags. Sækja þarf um á hverju námsári.
- Sjóðurinn greiðir þá meðlag beint til Innheimtustofnunar sveitarfélaga.
- Lánað er vegna meðlags 3.250 kr. fyrir hverja ECTS-einingu sem námsmaður lýkur.
- Sambærileg regla gildir fyrir nám erlendis.
- Meðlagslánin greiðast út eftir á með framfærslulánum hverrar annar.
Makalán
Við sérstakar aðstæður getur námsmaður sótt um viðbótarlán vegna framfærslu maka á námstíma:
- Vegna veikinda eða örorku maka skv. læknisvottorði.
- Ef námsmaður og maki eiga langveikt eða fatlað barn sem maki þarf að sinna heima og getur því ekki unnið utan heimilis.
- Ef námsmaður og maki eru búsett erlendis, eru með barn á framfæri og maki er heimavinnandi þar sem hann á ekki rétt á atvinnuleyfi í námslandinu.
- Þeir námsmenn sem fengu makalán skólaárið 2009-2010 og halda áfram í sama námsferli skólaárið 2011-2012 eiga rétta á að sækja um makalán.
- Þegar sótt er um makalán þá hafa samanlagðar tekjur námsmanns og maka áhrif á upphæð námslánsins.
Athugið: Ekki er veitt makalán ef maki er sjálfur á námslánum á skólaárinu.