Main Content

Búsetuskilyrði á Íslandi

Umsækjendur þurfa að uppfylla tiltekin búsetuskilyrði til að eiga rétt á námslánum.

Íslenskir ríkisborgarar:

  • Verða að hafa starfað hér á landi í 12 mánuði fyrir umsóknardag og haft búsetu hér á landi á sama tíma eða;
  • starfað skemmri tíma en 12 mánuði og haft búsetu hér á landi í samanlagt 2 ár á samfelldu 5 ára tímabili fyrir umsóknardag.
  • Ef viðkomandi hefur ekki stundað vinnu hér þá þarf hann að hafa búið hér í samfellt 5 ár fyrir umsóknardag ef búseta hefur hafist í öðru augnamiði en að stunda nám.
  • Ef viðkomandi uppfyllir ekki ofangreind skilyrði er stjórn sjóðsins heimilt í sérstökum tilfellum að leggja sterk tengsl íslensks ríkisborgara við Ísland að jöfnu við framgreind skilyrði. Verður umsækjandi þá að gera grein fyrir sterkum tengslum við Ísland í erindi til sjóðsins. Nánari upplýsingar um efnis slíks erindis, æskileg fylgiskjöl og þau sjónarmið sem stjórn sjóðsins byggir ákvörðun sína á má finna hér.

Erlendir ríkisborgarar:

  • Erlendir ríkisborgarar af EES-svæðinu með búsetu hér á landi vegna starfs síns, fjölskyldur þeirra og aðrir sem eru eða hafa verið á þeirra framfæri eiga rétt á námslánum eins og íslenskir námsmenn, þegar samhengi er á milli náms og fyrra starfs hér á landi.
  • Erlendir ríkisborgarar sem eru giftir íslenskum ríkisborgurum og hafa átt lögheimili á Íslandi að lágmarki í 2 ár af síðustu 5 árum, geta sótt um lán vegna náms á Íslandi eða Norðurlöndunum.
  • EES-borgarar sem ekki eru farandlaunþegar geta átt rétt á lánum hér eftir samfellda 5 ára búsetu.
  • Aðrir erlendir ríkisborgarar geta átt rétt á námslánum ef íslenskir ríkisborgarar njóta sambærilegra réttinda í heimalandi þeirra.

Teljir þú þig eiga rétta á námslánum frá LÍN, sbr. framangreint, verður þú að leggja fram staðfestar upplýsingar um stöðu þína, til að mynda skattframtöl og skráningu Þjóðskrár á komu þinni til landsins eða önnur sambærileg gögn. Ef umsækjandi er farandlaunþegi frá Evrópska efnahagssvæðinu (EES) óskar sjóðurinn eftir því að gert sé grein fyrir samhengi milli náms og fyrra starfs hér á landi.