Skil á upplýsingum og gögnum
Upplýsingar og gögn sem námsmenn þurfa að skila eftir að þeir hafa lagt inn umsókn eru mismunandi eftir hverju námi fyrir sig og hvar námsmaðurinn er staddur á námsferlinum.
Eftir að umsókn berst er metið hvort frekari gagna er þörf og er þá send viðeigandi beiðni til umsækjanda.
Mikilvægt er að lesa tilkynninguna vandlega og skila inn öllum umbeðnum gögnum sem fyrst.
Ef gögnum er ekki skilað innan tveggja mánaða frá dagsetningu beiðni er heimilt að fella umsókn um námslán úr gildi.
Tekjuupplýsingar
Allir umsækjendur skulu skila staðfestingu eða breytingu á fyrri áætlun vegna tekna á árinu 2012 áður en lán fyrir haustönn er greitt út.
LÍN sendir út beiðni í tölvupósti þegar þar að kemur.
Fylla út Tekjuáætlun 2012 á Mínu svæði.
Áður en kemur að afgreiðslu vorláns þarf sjóðurinn að fá tekjuupplýsingar úr skattframtali námsmanns.
Ef námsmaður skilar skattframtali rafrænt til RSK fær sjóðurinn upplýsingarnar þaðan.
Ef skattframtali er ekki skilað rafrænt þarf námsmaður sjálfur að skila afriti til LÍN.