Main Content

Sótt um í fyrsta sinn

Að sækja um í fyrsta skipti

  • Námsmenn sem eru að sækja um í fyrsta skipti þurfa að kynna sér vel úthlutunarreglur LÍN
  • Mitt svæði er einkasvæði námsmanna sem aðgangur er að í gegnum alla Island.is og heimabanka.
  • Umsóknareyðublöð er að finna á  Mínu svæði, þar er hægt að sækja um námslán og fylgjast með stöðu á umsókninni.
  • Lánsáætlun birtist á Mínu svæði þegar hún er tilbúin og hægt er að prenta hana út þar. Viðskiptabanki námsmanns hefur einnig aðgang að lánsáætluninni og hægt er að sækja um fyrirgreiðslu hjá bankanum vegna væntanlegs námsláns.
  • Gögn sem vantar vegna umsóknar. Námsmenn þurfa alltaf að skila eins fljótt og auðið er þeim gögnum sem þeir eru beðnir um. Að öðrum kosti er ekki hægt að afgreiða lánið. Ef einhver gögn vantar er sú beiðni birt með rauðum stöfum á Mínu svæði.
  • Útborgun láns. Lán vegna framfærslu eru alltaf greidd út eftir hverja önn. Skólagjaldalán til fyrsta árs nema, ef þeir eiga rétt á þeim, eru einnig afgreidd eftir að námsárangur hefur borist eftir 1. önn.  Þegar námsmenn eru komnir lengra í námi eru skólagjaldalán afgreidd í upphafi hverrar annar.
  • Gátlisti yfir gögn sem skila þarf til LÍN. Upplýsingar um tekjur þurfa allir umsækjendur að senda LÍN þegar þeir fá beiðni þar um. Annars getur það farið eftir hvaða nám er stundað og hvort skólinn er á Íslandi eða erlendis hvaða gögnum þarf að skila.