Lánsáætlun
Hvað er lánsáætlun?
Eftir að námsmaður hefur sótt um námslán og skilað inn þeim gögnum og upplýsingum sem Lánasjóðurinn óskaði eftir í sambandi við umsóknina er gerð lánsáætlun og birtist hún á Mitt svæði undir flipanum ”Námslán”.- Þar kemur fram upphæð lánsins sem reiknuð er út frá þeim upplýsingum sem komið hafa fram í umsókn, t.d. námsland, fjölskyldustærð námsmanns og tekjur námsmanns.
- Skilgreining á hvaða upplýsingar er að finna í lánsáætlun hér.
Þjónusta banka
- Námsmenn geta framvísað lánsáætluninni í banka og fengið yfirdrátt út á hana sem þeir síðan endurgreiða með námsláninu þegar það er borgað út (námslán eru að jafnaði borguð í janúar og apríl-júní).
- Athygli er vakin á að með því að taka bankalán er námsmaðurinn að velta láni á undan sér - því námslánið er greitt eftir á, fyrir önn sem er lokið.
- Ef námsmaðurinn getur sjálfur með einhverjum hætti framfleytt sér fyrstu önnina getur hann lifað af láninu sem berst í janúar á vorönninni.